Barnestrikk fra Nord inniheldur uppskriftir með dásamlegum prjónaflíkum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 1-14 ára. Uppskriftirnar eru innblásnar af finnskum og samískum menningararfi og fallegri náttúru í Finnmörku. Allar uppskriftirnar eru prjónaðar í skemmtilegum litum og úr góðu ullargarni. Meðal annars er notaður léttlopi í nokkrar uppskriftir.
Útivistaráhugakonan Christina Gjertsen stendur á bak við hönnunina í bókinni og heldur uppi Instagram reikningum @sisuknitwear. Hún er prjónahönnuður, blaðamaður og ljósmyndari. Vinsælar uppskriftir úr bókinni Strikk fra Nord, t.d. Multebærgenseren, Dvergbjørkmønsteret og fleiri eru hér komnar í útgáfu fyrir börn. Í bókinni má finna uppskriftir af fallegum peysum, sokkum og eyrnaböndum.
Smelltu á þennan hlekk til að fletta í bókinni.
Höfundar: Christina Gjertsen
Útgáfuár: 2024
Harðspjalda
Tungumál: norska
Bls.: 123
Stærð: 1,7 x 21,6 x 26,7 cm