Í settinu er ein 100g hespa og tvær 20g hespur af sterku og endingargóðu sokkagarni, BFL Nylon Sock. Það prjónast mjög vel og heldur vel formi. Handgert prjónamerki fylgir.
Garn: 75% BFL ull (sw) + 25% nylon
Þyngd: 100g + 2x 20g
Lengd: 425m + 2x 85m
Uppbygging: 4ply / fingering/sock
Tillaga að prjóna/nála stærð: 2.25mm – 3.5mm
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur uppúr volgu/köldu vatni eða léttur hringur í vél. Leggið flatt til þerris.
Vottun: Þessi garngrunnur ber OekoTex Standard 100 vottun.
Prjónfesta (m.v 10x10cm)
Prjónað í hring: á prjóna númer 2.25mm: 38L og 48 umf
Prjónað slétt: á prjóna númer 2.5mm: 32L og 44 umf
